Ayurveda & Hot Yoga — Lifandi samspil

Ayurveda og Hot Yoga eru ekki tvær aðskildar leiðir. Þau mynda heild þar sem taktur, hiti og heilun vinna saman. Hvort tveggja á rætur í visku náttúrunnar, í því hvernig líkaminn geymir minningar og hvernig orkan flæðir um okkur. Ayurveda hjálpar okkur að skilja hvernig frumefnin fimm hafa áhrif á meltingu, orku og tilfinningar. Jóga færir þekkinguna inn í líkamann með öndun, hreyfingu og kyrrð. Þegar Ayurveda og jóga eru iðkuð saman verða þau leið til að endurheimta jafnvægi á einstaklingsbundinn hátt.

Rytmi. Eldur. Strúktúr. Kyrrð.

Saman gefa Ayurveda og jóga okkur verkfæri til að losa um það sem íþyngir okkur, róa það sem er í ójafnvægi og tengjast aftur því sem skiptir mestu máli. Sá er grunnurinn að öllu því sem ég miðla til jógakennara — ævaforn þekking, einlæg og persónuleg.

Grunnur Ayurveda

Við erum hluti af náttúrunni

Hugur og líkami eru ekki aðskilin

Þarfir fólks eru mismunandi

Ayurveda - Lífsvísindi

Ayurveda eru lifandi fræði sem byggja á einfaldleika en búa yfir djúpri merkingu. Samkvæmt þeim er allt efni, þar á meðal líkami okkar og matur, samsett úr frumefnunum fimm: eter, lofti, eldi, vatni og jörð. Samspil þessara frumefna er einstakt hjá hverju okkar. Sumir hafa t.d. meira af eldi, aðrir meira af jörð, og þessi einstaka samsetning mótar eðli okkar. 

Um mig

Dísa er E-RYT® 500 jógakennari og YACEP® í Kalkútta-hefðinni og menntaður ayurvedískur heilsu- og lífsstílsráðgjafi frá Kerala Ayurveda Academy. Árið 2024 fékk hún vígslu í Kriya Yoga hjá Self-Realization Fellowship, samtökunum sem Paramahansa Yogananda stofnaði.

Dísa leggur áherslu á skýra og persónulega nálgun. Áhugi hennar á Ayurveda og Hot Yoga byggir á hagnýtum aðferðum sem styðja við jafnvægi í daglegu lífi. Hún leggur áherslu á að mæta hverjum og einum þar sem hann er og skapa rými fyrir ólíkar þarfir, líkama og reynslu.

Hún sameinar hefðbundna þekkingu og áralanga reynslu af andlegri iðkun og nærgætinni hlustun. Bakgrunnur hennar í rannsóknum, listum og miðlun mótar einnig starf hennar. Hún býður upp á námskeið fyrir konur sem vilja efla vellíðan og fyrirbyggjandi aðferðir í heilsu. Hún býður einnig jógakennurum upp á framhaldsnám .

Disa Lareau Þórdís Jóhanna Lareau
Continuing education provider. Yoga Alliance
E-RYT500
 

Veltirðu fyrir þér hvort eitthvert námskeiðanna minna henti þér? Við getum alltaf hist í stuttu Zoom-spjalli. Sendu mér línu á: info@hakayuryoga.comog við finnum tíma til að spjalla.

Skráðu þig á póstlistann minn og fáðu fróðleik og fréttir.

Subscribe for Email Updates
Newsletter consent