Lærðu að lesa líkamann þinn

Dýpra með Hot Yoga og Ayurveda

6 vikna námskeið

Það sem stuðlar að heilsu hjá einum hentar ekki endilega öðrum. Ayurveda byggir á því að við séum ólík og þurfum því að laga mataræði og daglegar venjur að eigin þörfum. 

 

 

Námskeiðið er fyrir lítinn hóp þar sem hver þátttakandi fær persónulega leiðsögn og einkaráðgjöf samhliða Hot Yoga og Ayurveda. Markmiðið er að þú kynnist líkama þínum betur og fáir hagnýt verkfæri sem styðja við fyrirbyggjandi heilsu og vellíðan.
 

 

Ayurveda er yfir 5.000 ára gamalt indverskt heilsukerfi sem kennir einfaldar og hagnýtar leiðir til að styðja við okkur í daglegu lífi. Á námskeiðinu lærir þú hvernig mataræði, svefn, hreyfing og daglegar venjur geta unnið saman að því að mæta þörfum líkamans.

 

Námskeiðið er heildræn endurnæring fyrir komandi árstíð. Það hentar öllum, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í Hot Yoga eða hefur þegar kynnst því og vilt dýpka áhrifin með Ayurveda, mataræði, daglegum venjum og persónulegri leiðsögn.

Það sem fólk segir um námskeiðið

Umsagnir

Þegar ég fann Ayurveda

Ayurveda kom inn í líf mitt þegar ég var búin að fá nóg af misvísandi ráðleggingum. Ég vissi að jóga væri fyrir mig en vildi einnig kynnast systurfræðum þess.

Sérstaklega eftir fertugt fór Ayurveda að höfða meira til mín. Þar fann ég nálgun á heilsu sem snerist ekki um kaloríur eða að neita mér um hluti, heldur um að kynnast eigin líkama, þörfum hans og takti.

Rétt eins og jóga varð Ayurveda leið fyrir mig til að endurheimta umrædd tengsl.

Þegar ég fór að lifa meira ayurvedískt áttaði ég mig á því hversu auðvelt er að missa tengslin við eigin líkama og náttúrulegan takt.

Í nútímasamfélagi, þar sem hraðinn er mikill og stöðugt verið er að segja okkur hvað við eigum að gera til að hugsa um heilsuna, finnst mér sérstaklega dýrmætt að leita aftur til heilsukerfis sem hefur staðist tímans tönn og læra að hlusta á eigin líkama.

Þetta er sú nálgun sem ég vil að Dýpra miðli áfram.

Námskeiðið

Innifalið

Heildstæð nálgun sem sameinar jóga, Ayurveda og persónulega leiðsögn.

Yoga mat

12 lokaðir Hot Yoga hóptímar

Einkatími í jógastöðunum

5 fyrirlestrar í Ayurveda

Heilsu- og lífsstílsráðgjöf

90 mín hver tími

1 klst. (einkatími)

Hver fyrirlestur er ein klst.

1 klst. (einkatími)

Heildræn 90 mínútna Hot Yoga upplifun. Við byggjum upp styrk og liðleika og finnum innri ró í hlýlegu umhverfi.

Jógastöðurnar þínar eru fínpússaðar til að bæta líkamsstöðu, draga úr hættu á meiðslum og hjálpa þér að fá enn meira út úr æfingunni.

Þú lærir hvernig melting, svefn, daglegar venjur, líkamsgerðir og mataræði hafa áhrif á orku, heilsu og vellíðan.

Persónuleg ráðgjöf með daglegum venjum og náttúrulegum úrræðum sem passa við þitt líkams- og hugarfar. Plan sem þér líður vel með.

Í heilsu- og lífsstílsráðgjöfinni

skoðum við heildarmyndina

Við skoðum þína líkamsgerð og búum til hagnýtt, raunsætt plan fyrir þitt daglega líf.

Þínir náttúrulegu eiginleikar og hvað getur komið þér úr jafnvægi.

Hvar þú gætir verið úr jafnvægi

Einkenni um Ama (ómelt efni í líkama eða hug).

Taktur sem styður þig: daglegar og árstíðabundnar venjur sem taka mið af þínum þörfum.

Persónuleg leiðsögn um mataræði og meltingu: hvað, hvenær og hvernig þú borðar samkvæmt Ayurveda.

Náttúruleg úrræði og jurtablöndur sem henta þér.

Námskeiðið er fyrir þig ef ...

  • Þú finnur fyrir streitu eða orkuleysi
  • Þú finnur fyrir langvarandi þreytu
  • Svefnrútínan er í rugli.
  • „Heilsutrend“ eru ekki fyrir þig
  • Þú vilt plan sem hefur merkingu, skýra umgjörð og tekur mið af því hvernig þér líður.
  • Þú vilt leiðsögn frá menntuðum heilsuráðgjafa sem tengist jógafræðunum.

Skráðu þig á biðlistann fyrir neðan og ég læt þig vita áður en næsta námskeið hefst. (Ekki bindandi.)

.

Ég læt þig vita áður en næsta námskeið hefst.

Marketing by